![]() |
||
Hérna sjáum við nýlegt, fallegt einbýlishús á einni hæð. Húsið er um 190fm og skiptist í þrjú svefnherbergi,tvö baðherbergi,stofu,eldhús, þvottahús ásamt góðum bílskúr.Háhraða (þráðlaus) nettenging er einnig til staðar. Aðal herbergið er með stóru fataherbergi og mjög góðu baðherbergi. Þar er tvöfaldur vaskur, salerni, stórt baðker og tvöfaldur sturtuklefi. Eldhúsið er vel búið tækjum á bandaríska vísu. Þar eru stólar og borð fyrir 8 manns. Þvottahús er innan af eldhúsi með þvottavél og þurrkara. Loftkæling (central) er í húsinu og viftur eru í öllum svefnherbergjum. Svefnpláss er fyrir 7-8. Í stofunni er 42” flatsjónvarp og Bose Surround heimabíó með útvarpi og dvd-spilara. Í einu svefnherbergjanna er sjónvarp og dvd-spilari. Stór verönd er útfrá eldhúsi og stofu. Veröndin er yfirbyggð með flugnaneti. Þar eru góð útihúsgögn og gasgrill. Einnig er pallur sem hægt er að nýta til sólbaða og slökunar. Umhverfis húsið er garður í góðri rækt. Þar vaxa pálmatré og liggur garðurinn niður að vatni þar sem er fjölskrúðugt dýralíf. Í hverfinu er glæsilegt klúbbhús (Clubhouse). Þar er líkamsræktaraðstaða, borðtennis, billjard og aðgangur að fjórum nettengdum tölvum. Einnig er þar gott bókasafn og aðstaða fyrir samkomur. Við klúbbhúsið er tennisvöllur. Þar er frábær sundlaug með sólbekkjum, stólum og borðum. Salernis- og sturtuaðstaða fyrir sundlaugagesti er inni í klúbbhúsinu. Þetta er mjög fallegt og rólegt hverfi og öll sú aðstaða sem áður er upptalin, er eingöngu fyrir íbúa hverfisins og ef vill, gesti þeirra. Húsið er staðsett í Kissimmee, sem er suðvestur af Sanford International Airport. Vegalengdin frá Sanford og til Stonehurst er 46 mílur eða 74km miðað við að farin er hraðbraut nr 417. Stutt er í alla þjónustu og einungis 8 mílur í Disney World. Í næsta nágrenni eru góðir golfvellir (t.d. “Falcon Fire” og í “Hunters Creek”)
|
||